
Allt um kosningarnar á einum stað
Ég átti gott spjall við þau Gunna Dís og Atli Fannar í morgunútvarpinu í gærmorgun um síðuna sem ég bjó til og hef verið að halda utan um fyrir kosningarnar https://lýðræðisveislan.is
Ég er að fara að kjósa í fyrsta skiptið í borginni og rak í rogastans hvað það var í raun mikið rannsóknarverkefni að komast að því hvað er mikið mál að fá eitthvað heildstætt yfirlit hvað er í boði í hverju sveitarfélagi fyrir sig.
Ég setti síðuna upp sem kort, það er hægt að klikka á hvaða sveitafélag sem er, og sjá þar alla flokkana sem er í boði, í svona fallegri regnbogaharmoniku. Þú klikkar á þann flokk sem þú vilt læra um og færð að sjá stefnuskránna hjá honum, hvar þeir standa á ákveðnum klofningsmálum, og svo yfirlit yfir frambjóðendur með kynningu um hvern og einn.
Þetta eru yfir 180 framboð og meira en 1800 frambjóðendur með kynningu; ég tek þetta saman með gervigreind en keyri allt í gegnum bakkerfi þar sem ég fer yfir hvern einasta hlut áður en hann er settur inn á síðuna - sem er búið að vera bjálæðislega mikið puð! Það slæðast þó inn villur eða hlutir sem mættu vera öðruvísi svo ég hef það mjög auðvelt fyrir framobðin sjálf að koma upplýsingum til mín, og hef fengið meira en 50 ábendingar frá þeim sem ég bregst við um leið.
Þetta er sérstaklega gott fyrir framboð í minni sveitafélögum sem hafa kannski ekki mikla getu til að vera sýnileg og gott fyrir kjósendur í stærri sveitafélögum þar sem getr verið frumskógur að fá heildstætt yfirlit.
Ég sé til dæmis að framboðin í Strandabyggð og Bláskógarbyggð eru að reiða sig mikið á þetta! Ég á líka vini sem hafa ekki kosið áður en ætla að gera það núna þar sem þeir áttu auðvelt með að taka upplýsta ákvörðun. Og líka erlenda vini með kosningarétt sem hafa hingað til ekki skilið haus né sporð á íslenskri kosningadýnamík en hafa verið að nota þetta til að loksins geta sett sig inn í þessi mál.
Allavegna, ég vona að þetta nýtist flestum! Endilega gefið mér feedback ef eitthvað er sem mætti betur fara.