u/Tasaron

▲ 18 r/Iceland

Breyta Suðurlandsbraut í breiðstræti - af hverju ekki?

https://preview.redd.it/exbr92velw0h1.png?width=1024&format=png&auto=webp&s=fab054c9680d4db49a630784ae3782e86e47c77b

Veit einhver afhverju aldrei hefur verið íhugað að byggja hinum megin við Suðurlandsbraut og búa til breiðstræti (boulevard/avenue)? Nú er áformað að fækka akgreinum með tilkomu borgarlínu. Í fullkomnum heimi væri hægt að færa bílastæðin neðanjarðar með nokkrum inngöngum. Jafnvel halda tveim akgreinum+borgarlínu, og byggja neðstu-hæðar verslanir, veitingastaði osfr + skrifstofuhúsnæði og íbúðir á efri hæðum. Mér finnst þetta vera dauðafæri til að gera alla sátta, og byggja upp alvöru líflega borgargötu í evrópskum stíl. Svolítið Laugarvegur á sterum, meira fókusaður á íbúa og bílana þeirra, en samt með möguleika á mannlífi og góðum gönguleiðum. Stutt í Laugardalinn líka.

Kannski hefur þetta verið íhugað og einhver ástæða fyrir að fari ekki lengra?

Þurfti bara að henda þessu frá mér.

reddit.com
u/Tasaron — 21 hours ago