u/CardiologistIll7656

Plastlaust líf

Undanfarna mánuði hefur ég verið að kíkja á plastlausan eða plastlítinn lífsstíl og hef (eins og aðrir) komist að því að það er ekki hægt að lifa án þess að komast í snertingu við plast í nútíma samfélagi.

Þar sem ég er ekki á samfélagsmiðlum frá Meta, veit ég ekki hvort það er einhver umræða um plastlaust líf þar, en eru einhverjir hér sem eru í þessum pælingum og væru til í að eiga uppbyggilegt samtal um hvar er hægt að kaupa plastlaus heimilistæki, matvæli án plastumbúða og hvernig er hægt að útbúa heimilið þannig að sem minnst plast sé notað?

Ég er í grúppum sem heita r/PlasticFreeLiving og r/plasticfree_uk en það er svo oft verið að tala um hluti sem eru bara ekki fáanlegir á Klakanum eða kosta einfaldlega of mikið hér til að vera raunhæfur valkostur (ég er að horfa á ykkur fjölnota sílikonpokar)

Ef einhverjir hafa áhuga á svona spjalli er ég mjög spent að tala (illa) um plast 😀

reddit.com
u/CardiologistIll7656 — 1 day ago